Early in the homeland
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 28409
Dagatal
september - 2010
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
FyrriNæsti
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 836 dögum
flytur Erla aftur til Íslandsins góða!
Mömmurnar mínar
MemyselfandI
Leitarbox

08.11.2008 01:54:20 / emma

Vent-ilation

Ég er í ruglinuuuu... ég er í ruglinuuuu... inni hjá Indriðaaaaa... lalalalalallaaaa...
En án alls gríns, þá er ég ekki inni hjá Indriða, en er aftur á móti í ruglinu!
Klukkan er nákvæmlega 1:43 aðfaranótt laugardagsins 8. nóvember á því herrans ári 2008 þegar ég hef þessi bloggskrif - og ætti ég í raun að vera steinsofandi í hausinn á mér (þessi setning hefur alltaf vafist soldið fyrir mér, að sofa "í hausinn á sér"... alltaf sagt við mig þegar ég var lítil en ég skildi það aldrei... og skil ekki enn!)
Var að enda við að horfa á nýjasta þáttin í fimmtu seríu af GREYS og eftir það horfði ég á nýjasta nýtt í ANTM! Ég er húkkd á þessu helvíti.. og ekki nóg með að ég er bundin líkamlegum og tilfinningalegum böndum þessum tveim þáttaröðum, þá er ógeðslegasti þáttur veraldar orðinn fastur liður í minni tilveru - og það er LEIÐINDALJÓS á stöð 1!! Isss, ákkúrat þegar maður á að vera agalega dugleg að lesa og lesa og lesa meir, en nei. Greinilega ekkert les hér á  bæ! Planið var jú að útskrifast með láð í júní á næsta ári, og er enn... þarf bara að komast í gírinn. Gengur alveg fáránlega vel í skólanum þrátt fyrir lítið lær, en krönsið er og hefur alltaf verið minn stíll þegar kemur að prófum og ritgerðum... allavega virkaði það um daginn þegar Erlan las lesefni hálfrar annar á 3 dögum og fékk hvorki meira né minna en 9 á því prófi! Hnuss... og geri aðrir betur!
Internetið er minn Akkilesarhæll, þar næ ég nebblega í alla þessa þætti.
Já, heimurinn var góður áður en netið kom til sögunnar, þá var maður bara úti að leika sér í náttúrunni og ferska loftinu... í staðinn fyrir að loka sig inni frá veröldinni og eyða dýrmætum tíma af lífinu í sjónvarpsþáttagláp sem skilur ekkert eftir sig...
Er svo að fara í afmæli á morgun þar sem "all things 90s" verður í hávegum haft... og ég er ekki enn komin með átfitt. Held að ég fari bara sem ein af grúppíunum hans MC Hammer, í Hammer buxunum, Reeboks og einhverju sem ég vonandi finn í Kolaportinu á morgun. ohhhhh, the pressure...
Hér með lýkur þessu venti.. .og er klukkan 01:53
e.s. ég las textann ekki yfir og ætla ekki að gera það.. þannig að ef það eru stafsetningavillur, þá bara.. TOUGH LUCK!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 16:35:48 / emma

Tímaeyðsla

Eitthvað helv%$%* klukk sem er í gangi... ætti að vera að skúra gólf og þrífa íbúðina - nahh...

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Barþjónn á Vegamótum - !!!
  • Móttaka á hóteli - sem næturugla!
  • Frístundarfulltrúi hjá ÍTR - til þess að eiga salt í grautinn :)
  • Flugfreyja hjá Icelandair - fríðindi og flug :) hehehee....

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  • Boondock Saints - agalega heitur badass með sexí hreim!
  • Finding Nemo - my motto in life: "JUST KEEP SWIMMING, JUST KEEP SWIMMING SWIMMING SWIMMING...."
  • Kill Bill Vol. 1 og 2 - hörkukvensa... like me!
  • Coming to America - á alveg svaðalega góðar æskuminningar út frá þeirri mynd + Soul Glo... YOU GOT YOUR SOOOOOOOULL GLOOO BEBE, FEELING OH SO SILKY SMOOOTH...


Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  • Sigtún - ótrúlega kósí risíbúð, hefði ekki haft neitt á móti því að eiga þá íbúð sko!
  • Eggertsgata - stúdentagarðar og stuð!
  • Norwood Terrace, Leeds í Englandi - heilt ár með sama og engann hita, mýs í eldhúsinu og sveppi í baðherberginu. Nice-í-part-ei!
  • Kapellustígur - my own personal boudoir... lovinitt!

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • Riget
  • Flight of the Conchords
  • The Mighty Boosh
  • ANTM

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Spánn
  • Krít
  • England
  • Danmörk
  • (langar að bæta Frakklandi við á þann lista, alveg sjúk í París!)

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):

  • facebook.com
  • visir.is
  • mbl.is
  • ugla.hi.is

Fernt matarkyns sem ég held upp á:

  • haframjöl
  • ostur ostur ostur og aftur ostur!!!! mmmm, Krydd-Havarti er ein mesta snilld okkar tíma!
  • kókómjólk - ahhh, gæti lifað á þessum undramiði
  • Kaffi-Jógúrt....

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

  • Breskar bókmenntir og ljóð eins og það leggur sig hjá enskudeild HÍ
  • Skakki Turninn
  • Vikan
  • Morgunblaðið

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:

  • á lítilli eyju í Karíbahafinu að drekka Pina Colada og baða mig í sjónum
  • úti í náttúrunni í göngutúr - njóta lífsins og anda að mér hreinu lofti
  • í Bláfjöllum á skíðum
  • í baði... ahhhhh


Fjórir bloggarar sem ég klukka:

  • Þóra Norman

  • Tarfurinn
  • Maxie
  • Aubba Blö ;)

...og já, ég lofa...blogggyðjan mun rísa upp frá værum svefni innan tíðar - brace yourselves!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 13:42:04 / emma

Litli Krumpus minn

Það hlaut að koma að því, ég er orðin föðursystir síðan á mánudaginn. Líst ansi hreint vel á nýja hlutverkið, enda er litli krúttmús yndislegur:


Awwww... langar að ét´etta mús!!! :haha:



» 3 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 14:45:36 / emma

Jéah!

Lítur allt út fyrir að staðfestan og ákveðnin hafi borgað sig... ég er komin með íbúð!!!!!:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 12:13:15 / emma

Upp úr öskunni rís fönixinn...


Hef haft ansi litla lyst á því að blogga eftir að ég kom heim - enda var nennið og áhuginn í lágmarki hvað það varðar. Ýmislegt hefur þó gengið á í sumar, því verður ekki neitað... en látum það liggja milli hluta að sinni. Þar sem haustið er í þann mund að ganga í garð, og sumarið er við það að kveðja landann - mun ég rísa upp eins og fönixinn forðum daga, er í startholunum að setjast á skólabekk að nýju og klára BArnið. Loksins! Ótrúlegt að hugsa til þess að ég muni losna við þessa "möru" sem hefur legið á mér í fjölda ára - fyrrnefnd mara verandi þessi óvissa... vissi aldrei hvað mig nákvæmlega langaði að læra eða hvað mig langaði að gera við lífið. Og því sló ég því hvað eftir annað á frest á frest, þ.e.a.s. að klára gráðuna, því eins og flestir vita þýðir það að "raunverulegt líf" verður óneitanlega að hefjast að henni lokinni: íbúðarkaup, framtíðarvinna og reglubundið líf. Eitthvað sem ég hef ekki haft löngun til að kynnast í lengri tíma - útaf því að ég vissi ekkert hvar mig nákvæmlega langaði að lenda hvað varðar framtíðarvinnu. En það kemur alltaf að því að maður fær ógeð af stjórnleysinu, og vill koma árum sínum þannig fyrir borð að maður hafi það gott í framtíðinni - sé öruggur og líði vel með sjálfan sig og sína nánustu. Og er ég komin í þann gírinn einmitt á þessari stundu. Ekkert þrái ég heitara þessa dagana en mína eigin íbúð.. ótrúlegt en satt. Mætti segja að 3ja mánaða gisting inn á foreldrum sínum sem hafa ekkert pláss fyrir mann hafi svo sannarlega opnað augu mín fyrir því hversu nauðsynlegt það er að hafa sitt eigið svæði á sínum eigin forsendum. Enda ekkert stuð að búa bókstaflega í ferðatösku... sem er raunin hjá mér. En það er ljós við enda ganganna, því ég ÆTLA að fá íbúð á stúdentagörðum - alveg sama hvað!!! Ég skal, ætla og mun láta það gerast áður en langt um líður... allt spurning um hugarástand og staðfestu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 09:17:23 / emma

Honey I´m coming home

Þá er komið að því - brottför til Ísalandsins áætluð í kvöld, nánar tiltekið frá Manchesterflugvelli kl. 21.05 að staðartíma. Er ekki að fatta það ennþá að ég sé að yfirgefa þennan stað for good og flytja heim og hefja lífið að nýju. Pínu ljúfsárt að fara... en hey, ÉG ER Á LEIÐINNI HEIM PEOPLE!!!! VIL LÚÐRAÞYT OG SKRÚÐGÖNGU AF ÞVÍ TILEFNI! úje!!!

Leeds kveður, over and out! 8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 20:08:01 / emma

Go it to the hottest!

Er búin að eyða sona... eins og 20 mínútum af lífi mínu í að reyna að setja inn vídjó ... en nei, allt kemur fyrir ekki - djöfull er ég EKKI AÐ FÍLA NÝJU HEL***** UPPSETNINGUNA Á BLOG CENTRAL!!! DJÖ....!

en, ég hef ekki verið þekkt fyrir að lúta lægra haldi fyrir "æðri máttarvöldum"... læt bara fylgja með slóð að fyrrnefndu vídjói sem ég var að reyna að setja inn - því mér finnst þessi maður ÆÐI!!! Tjékk itt át!

Framlag Frakka í Júróvisjón... je!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 10:58:05 / emma

The renowned authoress... that is I!

Djöfull elska ég dictionary.com.... þessi síða er bara það besta since sliced bread... ! :haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 22:52:26 / emma

Úr fókus

Ég er að springa á limminu. Er alveg búin að tapa einbeitningunni með öllu - veit samt ekki alveg hvar eða hvenær hún tapaðist. Held hún hafi læðst út um gluggann í skjóli nætur og hlaupið á móts við náttúruna og frelsið. Er eflaust búin að koma sér vel fyrir í Hyde Park, með rónanum og hundinum hans sem þar dvelja, og hefur það náðugt... ætli henni hafi ekki bara ofboðið afskiptaleysi mitt í hennar garð – þar sem ég hef lítið sem ekkert púkkað upp á hana síðustu vikur og mánuði. Hversvegna veit ég ekki – er bara með hausinn einhversstaðar allt annarsstaðar en við það sem ég Á að vera að gera. Er farin að hugsa alltof langt fram í tímann sem og hlakka of mikið til væntalegra flutninga til heimalandsins eftir rétt rúman mánuð. Farin að skipuleggja einhverskonar framtíð eða framhald - þó bara í grófum dráttum – þar sem það er til svo mikils að hlakka. Alltént er það mín trú eins og staðan er í dag... en þetta er allt í framtíðinni, og veit ég að það er NÚIÐ sem skiptir máli! Bara erfitt að stilla sig af án þess að hafa fókus...

En ég þarf svo virkilega að fara og finna bévítans einbeitninguna og múta henni þar sem ég er á síðustu metrunum í skólanum. Lofa henni öllu fögru; láta henni líða eins og blóm í eggi sem hlúð er að með mikilli natni og umhyggju, svo hún fái að vaxa og dafna. Er samt ekki vongóð þar sem ég er búin að misbjóða henni í lengri tíma og hún er eflaust alveg komin með nóg af mér. Gæti verið að flökkulífið með rónanum heilli...? Situr á götuhornum víðsvegar um borgina og syngur fyrir mat... án þess að vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér – lífið eitt ævintýr. Hvernig er hægt að skáka því!? />

Kannski, ef ég heilla hana með gylliboðum, býð henni húsaskjól og hlýju, mat og umönnun – svo framarlega sem hún þýðist mér... þá verði hún þæg og hætti að strjúka. Ég þarf á henni að halda akkúrat núna... meir en nokkurntímann áður. Líður eins og bíl á síðasta bensíndropanum – og get ekki farið að fylla á því bensínverðið er svo hátt. Og ég bý ekki einusinni á Íslandi!

Ég er farin út að leita að grallaraspóanum... hilsen!
/>


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 14:27:19 / emma

Who?

Lífið er yndislegt!

Langaði bara að koma þessu áleiðis - til þeirra sem máski vita það ekki núþegar. :haha:

Annars er ég soldið forvitin... langar soldið að vita hvaða fólk er að ramba inn á síðuna mína og lesa þvaðrið í mér. Mjög fáir (því miður) kvitta fyrir komuna...  ég er að fá allt að 40-50 hit á dag, sem er slatti miðað við minn þrönga vinahóp sem (að því er ég best veit) venur komur sínar reglulega til Erluheima. Þannig að ég ætla að setja inn soldið glens sem ég stal af síðunni hennar Ásulings. Endilega að kommenta og ég svara um hæl...

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og… 

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig 

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig 

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig 

5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig



-Hugs n´ kisses



» 23 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 18:06:49 / emma

I can smell the summer in the air... or is it just me?


Einstaklega skrýtið veður í Englalandinu um þessar mundir. Soldið íslenskt í fasi: skýjað og grámygla í morgun, sól og léttskýjað í hádeginu – gekk á með éljagangi inn á milli sólargeislanna. Soldið sona “Suð-Vestan fjórir, tveggja millibara lægð og gengur á með skúrum”. Var samt alveg agalega dugleg í hádeginu og fór út að hlaupa. Það er eitthvað alveg nýtt í mínum bókum, hef haft andstyggð á hverskyns hlaupi (þó ekki namminu) í lengri tíma – eflaust tengi ég það við þá staðreynd að ég er með slæm hné og fæ mjög auðveldlega beinhimnubólgu sem orsakast (í mínu tilfelli) af of miklu hlaupi og hnjaski. Því hef ég haldið mig við skíðatækið og þrekstigann í ræktinni þegar kemur að brennslu – en ákvað í morgun að fara ekki í ræktina heldur drífa mig út að hlaupa í gvuðsgrænni í staðinn. Því það er ansi vorlegt um að líta utandyra – grasið er farið að grænka sem og trén, og feitar búsældarlegar býflugur eru vaknaðar af vetrardvalanum og farnar á stjá í leit að æti. Næstu 2 mánuðir sem ég á eftir af dvöl minni hérlendis eiga eflaust eftir að vera ansi huggulegir – enda ekkert nema sól og bjartsýni framundan á þessum bæ.
Tók eftir því að  það eru rúmlega 6 vikur síðan ég bloggaði síðast. Men hvað það er langur tími! Næstum jafnlangur tími og ég á eftir af skólanum. Jerimías!

Var rosa gaman á Íslandi yfir páskana. Ákvað að skella mér heim í nokkrar vikur í boði Hótel Mömmu, þar sem það var svo agalega langt ”páska”frí í skólanum. Plús það að fjárhagurinn er eitthvað farinn að láta á sjá og gott að geta fengi mömmumat – enda ekkert grín að vera á námslánum. Get varla beðið eftir að fara að vera vinnandi aftur og eiga moní inn mæ pokkitt... og komast til úglanda. Dejöfull hvað ég ætla að sjoppa og sjoppa í Amirríku í sumar... gaman og stuð! Je!

Er að spöggúlera að kíkja til Lundúna þarnæstu helgi í þeim tilgangi að bera Hjösslerinn augum og verða vitni að því þegar hann sigrar heiminn... eða a.m.k. London. Hann er kominn í eitthvað massívt band sem er í þann mund að skrifa undir samning við eitt stærsta plötufyrirtækið í bransanum. Ætti að vera heilmikil og skemmtileg... öh... skemmtun. Það held ég nú!>:haha:>>

Ananas er ég að löva þetta band þessa dagana, þá sérstaklega lagið NATALIE NOW - veljum íslenskt maður!

Hér með skora ég á Talíbanann til að láta í sér heyra... löngu orðið tímabært, enda er konan í óða önn að kasta steinum úr glerhúsi! Hvar er pistillinn Talbó, hvar segi ég?! />


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 23:22:13 / emma

Þegar skrifuð skal ritgerð...

...finnur maður sér alltaf eitthvað annað að gera. Skil mig ekki. Það er eins og ég þrífist best á pressu og kvíða - verð að finna virkilega fyrir því að klukkan tifar og stutt í skil. Þá fer ég af stað. Veit ekkert hvaðan ég hef þetta. Eins með þegar ég þarf að vera mætt einhversstaðar... ég er krónískt alltaf (og þá meina ég ALLTAF!) 5-10 mínútum of sein. Er búin að vera að reyna stíft að hrista þetta af mér, en gengur treglega. Held að gamla máltækið Erfitt að kenna gömlum hundi að sitja eigi vel við mig.
Það er nú reyndar ástæða fyrir þessum skrifum á veraldarvefinn að þessu sinni. Er að koma rithöfundinum í mér af stað, því eins og kom fram í færslunni hér á undan, þá hefur hún verið eilítið feimin og ekki látið sjá sig mikið upp á síðkastið. En ég hef fulla trú á henni, hún er ágæt. Hún kann vel til verka og þegar hún fer af stað - there is no stopping her! LIKE A ROLLING FU**ING STONE! Áfram ég!
Fór á tónleika í gær. Ákvað það bara með nokkurra klukkutíma fyrirvara, þar sem hljómsveitin sem um ræðir er í miklu uppáhaldi hjá vinkvennahóp mínum. Reyndar svo mikið í uppáhaldi, að fyrrnefndar stúlkur sendu kauðum rafpóst fyrir nokkrum árum (eftir að hafa séð til drengjanna á Iceland Airwaves), þar sem þær tjáðu þeim að þær væru búnar að stofna íslenskan aðdáendaklúbb fyrir bandið. Sendu meira segja myndir af sér með póstinum, hýrar á brá og með stútinn alveg á hreinu! Ekki veit ég hvað þeim nákvæmlega gekk til með þessari aðgerð, grunar að þetta hafi verið eitt allsherjar spaug hjá þeim... en í seinni tíð er farið að renna á mig tvær grímur. Held að þeim hafi langað til að komast í tæri við drengina, þar sem ein stúlkan í þessum hóp bar losta í "hjarta" til trommara bandsins. Enda ekkert skrýtið, maðurinn er gullfallegur! Held að þær hafi fengið svar til baka, frá umboðsmanni drengjanna, sem þakkaði þeim kærlega fyrir hlý orð í þeirra garð, og að mig minnir ætlaði að senda þeim plaggöt og eiginhandaráritanir. Held að póstarnir hafi ekki verið fleiri af stúlknanna hálfu - enda flestar umræddra kvenna orðnar ráðsettar húsmæður í Breiðholtinu... eða, næstum því, og ekki er það  sæmandi "giftum konum" að eltast við stráka með hljóðfæri. Slíkt er bara óhugsandi! ussss..
Alltént, tónleikarnir voru hin mesta snilld! Sá þessa stráka spila einmitt á Airwaves - og ég verð að segja að gærkvöldið kom mér virkilega á óvart. Miklu þéttari sem band, búnir að bæta við sig 2 hljómsveitarmeðlimum og búnir að rokka talsvert upp þennan ambient/indie fílíng sem var í gangi hjá þeim fyrir öllum þessum árum síðan. Get sko sagt að ég sé ekki eftir þessum tæpu 2 klukkutímum og 4 pundum sem ég eyddi í þetta kvöld.
Langar svo bara að koma einu öðru á framfæri.... ÉG SKIL EKKI STUTTBUXUR! Bara skil þær ekki! Virðist vera alveg afskaplega mikið trend í dag að spranga um í þessum ógeðslegu UGG-moonboots viðbjóðum, gammó og fckn stuttbuxum! Þetta gjörsamlega tröllríður landanum hér í Englalandinu um þessar mundir. Viðurstyggð. Stuttbuxur eiga bara heima á ströndinni, í sundi - eða á limafögrum karlmönnum í ræktinni. Punktur!

Nú ætla ég að halda á vit ritgerðarinnar... ÁFRAM ÉG! 8|

e.s. þetta band er töff! />


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 03:43:17 / emma

Skaðræðistól og syngjandi kalkúnn

Arrrghhh! Ég er svo EKKI að fíla nýju uppsetninguna á blogcentral! Get ekki einusinni sett inn vídjó lengur! GLATAÐ! Spurning um að færa sig um set... á einhvern annan vefþjón?! Hver ku vera sá besti í dag?
London-pistill er í smíðum. Er svo hrikalegaagalegaógillega upptekin þessa dagana, veð í ritgerðarskrifum upp að herðum... rithöfundurinn í mér er búin að vera eilítið feimin, en er farin að láta á sér kræla. Þótt fyrr hefði verið...

Og já, meðan ég man. Írar eru snillingar! Ætla vera írsk yfir Júró - þeir kunna sko að velja réttu lögin!

... vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta... nokkuð víst að Johnny Logan og Dustin the Turkey er gert jafn hátt undir höfði þar á bæ - enda Lógan-inn eilítið farinn að líkjast kalkúni í seinni tíð...




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 20:31:19 / emma

London calling

Ótrúlegt alveg hvað maður getur fengið lög á heilann... í fleiri daga! Síðustu vikuna er ég búin að vera með Fjólublátt ljós við barinn með Klíkunni á heilanum, og upphafsstefið (saxafónninn) er alveg búið að hringla í hausnum á mér. En það sem kannski skilur þetta lag frá hinum "límheilalögum" er sú staðreynd að ég fíla þetta lag í drasl... og rusl ef því er að skipta. Fæ einhverja gleðitilfinningu í hjartað og brosi út að eyrum - enda er kannski líka ærin ástæða til að brosa eins og sólheimafífl þessa dagana. Er að fara til London á morgun að hitta manninn, ætlum að eyða helginni saman og hafa það náðugt í Stórveldinu. Ætlunin er m.a. að fara í London Dungeon, sem og London Eye svo fátt eitt sé nefnt, og er ég að setja mig í startholurnar fyrir það verkefni - þeas London Dungeon. Þeir sem þekkja mig vel vita, að ég hef afskaplega lítið hjarta þegar kemur að blóði, pyntingum og öllu sem viðkemur hryllingi - og því hef ég ákveðið að klukkutímanum áður en farið verður í Dýflissuna verði varið á næsta bar... þar sem óteljandi skot verða á boðstólnum! Og hver veit, kannski maður skelli í sig nokkrum kokteilum tabút! Verð að ná upp nettu kæruleysi áður en lagt verður í þessa háskaför. Langar ekkert sérstaklega að eyða helginni upp á sjúkrahúsi, sökum hjartastopps sem ég mun (eflaust) koma til með að fá þarna í pyntingarklefanum. Urrrggg... en hvað gerir maður ekki fyrir fólkið sem manni þykir vænt um :lol:
Annars hef ég voða lítið að segja... langar að skella inn lagi vikunnar, sem er án efa eitt fyndnasta vídjó sem ég hef séð í langan tíma:

hahaha.... takið eftir gaurnum í bláu speedo-unum (kemur í kringum 1:47) ! PRICELESS!:haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 15:18:18 / emma

Broslag vikunnar

Þetta lag...
....er snilld!

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Leitarbox